Aðalfundur 2013
AÐALFUNDUR
Samtaka lífrænna neytenda
laugardaginn 25. maí 2013
kl. 14:00 - 17:00
Reykjavíkurakademíunni við Hringbraut 121
Dagskrá:
14:00 Aðalfundarstörf
14:30 Guðfinnur Jakobsson bóndi í Skaftholti heldur fyrirlestur um lífræna ræktun.
15:00 Skúli Helgason fv. þingmaður fjallar um Græna hagkerfið.
15:15 Hlé
15:30 Heiðursverðlaun SLN afhent.
15:45 Guðrún Hallgrímsdóttir stjórnarformaður Vottunarstofunnar Túns fjallar um stöðu lífrænnar ræktunnar á Íslandi í dag.
16:15 Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði fjallar um heimsókn sína til Bhutan. Bhutan er fyrsta landið sem tekur alfarið upp lífrænt vottaða ræktun.
16:45 Umræður
17:00 Fundi slitið
Húsið opnar klukkan 13.00
Léttar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.
Verið öll Hjartanlega Velkomin!
Svala Georgsdóttir
fráfarandi fulltrúi Samtaka lífrænna neytenda.
Lífrænn landbúnaður eykur fæðuöryggi
Höfundur greinar: Dr. Gunnar Á. Gunnarsson framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns.
„Lífræn ræktun getur séð heiminum fyrir nægri og næringarríkari fæðu.“
Lífrænar aðferðir eru í sókn um allan heim, ekki síst í viðskiptalöndum okkar. Þær eru byggðar á gríðarlegri reynslu og vísindarannsóknum. Stjórnvöld Evrópuríkja skynja framlag þeirra til umhverfisverndar, heilbrigðis og fæðuöryggis með virkum stuðningi við fræðslu, rannsóknir og þróunarstarf. Stofnanir í þágu landbúnaðar endurmeta starfsemi sína svo þær fái þjónað lífrænni ræktun. Á sama tíma birta tveir starfsmenn Landbúnaðarháskóla Íslands hverja greinina á fætur annarri gegn lífrænum aðferðum, nú síðast í Mbl 15. nóv. þar sem alþingismenn eru tuktaðir fyrir að álykta um grænt hagkerfi með áherslu á lífræna þróun.
Lífrænt Ísland 2012 í Norræna Húsinu 14. október
Samtök lífrænna neytenda standa fyrir viðburðinum Lífrænt Ísland - framboð, fróðleikur og smakk! í Norræna húsinu sunnudaginn 14. október nk. frá kl. 12:00-17:00 en þar verður leitast við að gefa sem gleggsta mynd af stöðu hins lífræna Íslands eins og það er í dag.
Lífrænir framleiðendur kynna vörur sínar og gefa að prufa og smakka af framleiðslu sinni. Stuttir og fræðandi fyrirlestrar verða á dagskrá á málstofu allan daginn og umræða á milli dagskrárliða.
Dagskrá málstofu Lífræns Íslands:
12:15 Neytandinn og matvælin - Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælaverkfræðingur
Garðurinn minn
12:30 Ætigarðurinn minn - Hildur Hákonardóttir, Ölfusi
12:45 Skrefin í garðinum í átt að lífefldri ræktun - Jóhanna B. Magnúsdóttir, Dalsá
13:00 Garðurinn minn án eiturefna - Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjugúrú
Sjálfbærni
13:45 Sjálfbærni í verki - Guðfinnur Jakobsson, Skaftholti
14:00 Lífræn ylrækt; hver er munurinn - Þórður Halldórsson, Akri
14:15 Hvað getum við ræktað á Íslandi? - Ingólfur Guðnason, Engi
Dýravelferð
15:00 Dýravelferð í lífrænum búskap - Ólafur R. Dýrmundsson, Bændasamtökunum
15:15 Kýr eru grasbítar: hvað þýðir það? - Kristján Oddsson, Neðra-Hálsi
15:30 Reynslan af vistvænni svínarækt - Arnheiður Hjörleifsdóttir, Bjarteyjarsandi
Lífrænt í gegnum tíðina
16:00 Sólheimar lífrænt samfélag í 80 ár - Erlendur Pálsson, Sólheimum
16:15 Ræktað í borg - Arnar Tómasson, hárgreiðslumeistari
16:30 Hið lífræna Ísland - Guðrún Tryggvadóttir, Náttúran.is
Komdu og upplifðu Lífrænt Ísland!
Í boði Samtaka lífrænna neytenda -




